Franski miðvallarleikmaðurinn Paul Pogba fer með Manchester United til Ástralíu í dag en félagið tilkynnti staðfestan hóp sem fer með liðinu í æfingaferðina.
Mikið hefur verið rætt og ritað um Pogba í sumar en hann er líklega á förum frá félaginu aðeins þremur árum eftir að hann samdi aftur við félagið.
Hann var einn öflugasti leikmaður liðsins á síðustu leiktíð en Juventus og Real Madrid hafa sýnr honum mikinn áhuga og er Mino Raiola, umboðsmaður hans, að reyna að finna næsta áfangastað fyrir hann.
United var óvíst um að Pogba myndi mæta í æfingaferð liðsins til Ástralíu en nú er það staðfest að hann fer með liðinu.
Félagið staðfesti þetta á samfélagsmiðlum nú rétt í þessu.
Our travelling squad for #MUTOUR 2019. pic.twitter.com/5hmSVDssPe
— Manchester United (@ManUtd) July 7, 2019
Athugasemdir