Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   sun 07. júlí 2019 20:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Rapinoe: Erum klikkaðar, það gerir okkur sérstakar
Mynd: Getty Images
Hin 34 ára gamla Megan Rapinoe var bæði best og markahæst á Heimsmeistaramótinu í Frakklandi.

Hún fór fyrir liði Bandaríkjana sem fór alla leið í mótinu. Liðið vann 2-0 sigur á Hollandi í úrslitaleiknum í dag. Annar Heimsmeistaratitill Bandaríkjana í röð og fjórði í heildina.

„Við erum klikkaðar, það er það sem gerir okkur sérstakar," sagði Rapinoe eftir úrslitaleikinn í dag.

„Við gefumst aldrei upp og við gerum allt til að vinna. Það er ótrúlegt að hugsa til þess hvað allir í hópnum okkar lögðu mikið í þetta: leikmennirnir, vinir okkar og fjölskylda eru hérna, þetta er súrrealískt."

„Ég veit ekki hvernig mér á að líða, þetta er fáránlegt."

Sjá einnig:
„Eigum að biðja um tvöfalt hærri laun fyrir þær"
Athugasemdir
banner
banner