Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 07. júlí 2021 01:05
Elvar Geir Magnússon
Chiellini grillaði í Alba
Chiellini var gríðarlega peppaður.
Chiellini var gríðarlega peppaður.
Mynd: EPA
Ofurkátur og eldhress Giorgio Chiellini vakti mikla athygli þegar framkvæmt var uppkast dómara fyrir vítaspyrnukeppnina í undanúrslitaleik Ítalíu og Spánar á EM alls staðar.

Staðan var 1-1 eftir venjulegan leiktíma og framlengingu og því réðust úrslitin í vítaspyrnukeppni á Wembley.

Sjá einnig:
EM: Ítalía í úrslit eftir maraþonleik

Chiellini lék á als oddi, hló og grínaðist í Jordi Alba. Þá kýldi hann spænska fyrirliðann létt á öxlina í góðu glensi.

Chiellini vann uppkastið og faðmaði Alba þegar það varð ljóst.

Ítalski varnarmaðurinn býr yfir gríðarlegri reynslu og hann lét svo sannarlega ekki spennuþrungið andrúmsloftið hafa áhrif á sig. Ítalía vann vítaspyrnukeppnina og mætir Englandi eða Danmörku í úrslitaleik á sunnudag.


Athugasemdir
banner
banner
banner