Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mið 07. júlí 2021 01:40
Elvar Geir Magnússon
Donnarumma: Get ekki lýst tilfinningum mínum
Gianluigi Donnarumma.
Gianluigi Donnarumma.
Mynd: EPA
Ítalski landsliðsmarkvörðurinn Gianluigi Donnarumma táraðist og gaf tilfinningunum lausan tauminn þegar sætið í úrslitaleiknum var tryggt.

Undanúrslitaleikurinn gegn Spáni fór alla leið í vítaspyrnukeppni þar sem Ítalía fagnaði sigri.

Donnarumma varði spyrnu frá Alvaro Morata í vítakeppninni áður en Jorginho steig á punktinn og skaut Ítalíu í úrslitaleikinn.

„Það er mikill styrkur í hópnum og okkur tókst að komast í úrslitaleikinn. Það er alveg ómögulegt að lýsa tilfinningum mínum," segir Donnarumma.

„Ég vil fagna þessu með liðsfélögum mínum og sigurinn er tileinkaður Spinazzola, hann sendi okkur myndbandskveðju fyrir leikinn."

Leonardo Spinazzola meiddist illa í sigrinum gegn Belgíu í 8-liða úrslitum og spilar ekki fótbolta næstu mánuði.

Ítalía mætir Englandi eða Danmörku í úrslitaleik á sunnudagskvöld.

„Ég er hjátrúarfullur," segir Donnarumma. „Ég ætla ekkert að tala um þennan úrslitaleik. Við byrjum að hugsa um hann á morgun. Í kvöld fögnum við."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner