Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 07. júlí 2021 06:00
Hafliði Breiðfjörð
Heimavöllur Þróttar Vogum áfram í Vogaídýfu
Marteinn Ægisson, Stella Björg Kristinsdóttir og Dagur Guðjónsson leikmaður Þróttar Voga.
Marteinn Ægisson, Stella Björg Kristinsdóttir og Dagur Guðjónsson leikmaður Þróttar Voga.
Mynd: Aðsend
Knattspyrnudeild Þróttar Vogum og Vogaídýfa hafa gert með sér áframhaldandi samstarfssamning og mun heimavöllur Þróttar Vogum bera áfram Vogaídýfuvöllurinn næstu tvö árin.

„Þetta eru frábærar fréttir fyrir Þrótt Vogum enda hefur samstarfið við Vogaídýfu verið frábært og erum við ánægð með að tengja okkur við Vogaídýfuna með þessum hætti. Vogaídýfa er öflugt fyrirtæki sem hefur metnað til að standa sig vel og er keyrt áfram af góðri liðsheild. Við hlökkum til áframhaldandi samstarfs og kunnum við þeim miklar þakkir fyrir stuðninginn,“ segir Marteinn Ægisson framkvæmdastjóri Þróttar Vogum.

Ævintýri Vogaídýfunnar hófst í Vogum á sínum tíma undir nafninu Vogabær, upphaflega stofnað sem verslun í Vogum árið 1976 en árið 1985 hófst framleiðsla á ídýfum og sósum.

„Vogabær er í dag markaðs og söluskrifstofa Kaupfélags Skagfirðinga og sér um alla sölu og dreifingu á vörum félagsins, sem eru framleiddar í Mjólkursamlagi KS á Sauðárkróki. Þar á meðal eru vörumerkin Vogaídýfa, E.Finnsson, Mjólka ofl. Við erum stolt af uppruna Vogaídýfunnar. Íþróttafélagið í sama sveitarfélagi hefur staðið sig vel í sínu starfi. Það var skemmtilegt að hitta alla sem fyrir það starfa, hér er kraftmikið fólk sem sinnir fórnfúsu starfi og hefur gert það mjög myndarlega. Vogaídýfan hefur fylgt Þrótti Vogum undanfarin ár og óskar Þrótti áframhaldandi velfarnaðar á næstu árum. Áfram Þróttur, “ segir Stella Björg Kristinsdóttir forstöðumaður hjá Mjólkursamlagi Kaupfélags Skagfirðinga.
Athugasemdir
banner
banner