Það vakti athygli þegar Yerry Mina fagnaði í miðri vítaspyrnukeppni þegar Kólumbía og Úrúgvæ mættust í 8-liða úrslitum Copa America. Mina fagnaði með því að dansa.
Hann fékk ekki tækifæri til að fagna í nótt þegar hann klikkaði á vítaspyrnu gegn Argentínu í undanúrslitum. Argentína vann í vítaspyrnukeppni, 3-2. Emiliano Martínez, markvörður Argentínu, var hetjan en hann varði þrjár spyrnur Kólumbíumanna.
Áður en Mina tók vítið reyndi Martínez að taka hann úr jafnvægi með því að láta hann heyra það. „Ég þekki þig, ég mun borða þig lifandi, ég mun borða þig lifandi," sagði Martínez áður en hann skutlaði sér og varði frá Mina.
Lionel Messi var mjög sáttur með sinn mann og lét Mina heyra það í kjölfarið. Mögulega var Messi ósáttur við eitthvað úr leiknum en glímdi við Mina í nokkrum návígum í leiknum.
„Dansaðu núna! Dansaðu núna!" kallaði Messi og þurfti aðstoðardómari að biðja Messi um að róa sig. Messi klappaði svo kaldhæðnislega fyrir Mina á leiðinni til baka.
Tvær klippur af vítaspyrnunni má sjá hér að neðan.

Messi shouting “HOW ABOUT DANCING NOW?” to Yerry Mina after his penalty miss against Argentina 😂 pic.twitter.com/J6XNxA83OD
— Football Shithousery (@FootyRustling) July 7, 2021
Watching Emiliano Martinez in that penalty shoot-out was incredible.
— Sacha Pisani (@Sachk0) July 7, 2021
Trash talking is one thing, but backing it up is something else. The Argentina and Villa GK made 3 huge saves.
His showdown with Mina & the celebration… 😂#CopaAmerica #ARGxCOL
pic.twitter.com/bcT38U8kBg
Athugasemdir