Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   mið 07. júlí 2021 20:18
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
PSG birti grein um Ramos og eyddi strax
Á leið til PSG.
Á leið til PSG.
Mynd: Getty Images
Það er búist við því að spænski varnarmaðurinn Sergio Ramos verði tilkynntur sem leikmaður Paris Saint-Germain á morgun.

Það klikkaði hins vegar eitthvað hjá Parísarfélaginu því það var grein birt á vefsíðu félagsins í dag um félagaskipti Ramos.

Þar var það sagt að Ramos myndi klæðast treyju númer fjögur í sínu nýja félagi. Greininni var fljótlega eytt og er ekki hægt að nálgast hana lengur. Það voru einhver mistök gerð þarna.

Ramos, sem er 35 ára, yfirgaf Real Madrid eftir síðustu leiktíð. Ramos hefur spilað með Real Madrid undanfarin 16 ár og er goðsögn hjá félaginu.

Þessi miklu sigurvegari mun ganga til liðs við PSG og verður það mikill liðstyrkur innan sem utan vallar enda mikill leiðtogi.


Athugasemdir
banner
banner
banner