Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   mið 07. júlí 2021 22:25
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Southgate leyfir Englandi að dreyma: Fjórir dagar í viðbót
Gareth Southgate.
Gareth Southgate.
Mynd: EPA
Gareth Southgate er annar landsliðsþjálfari enska landsliðsins sem kemur liðinu í úrslitaleik á stórmóti.

England er á leið í sinn fyrsta úrslitaleik á stórmóti síðan 1966 þegar þeir fóru alla leið á HM.

England lagði Danmörku að velli í kvöld, í framlengdum leik, 2-1.

„Ég er svo stoltur af leikmönnunum og það er ótrúlegt að vera hluti af þessu. Stuðningsfólkið var ótrúlegt í allt kvöld," sagði Southgate eftir leikinn.

„Ég hafði á tilfinningunni að við myndum komast þangað en Danmörk er með svo vanmetið lið. Þeir sköpuðu mörg vandamál fyrir okkur."

„Leikmennirnir hafa staðið sig ótrúlega vel. Það besta við þetta er að við höfum gefið stuðningsmönnunum frábært kvöld og ævintýrið heldur áfram í fjóra daga í viðbót."

England mætir Ítalíu í úrslitaleik á sunnudag.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner