Bayern Munchen býst við að framlengja við bæði Leon Goretzka og Kingsley Coman fyrir næsta tímabil.
Þetta segir Oliver Kahn, nýr stjórnarformaður félagsins, en hann hefur tekið við því starfi af Karl Heinz Rummenigge.
Coman er sérstaklega orðaður við brottför frá Bayern en ýmis lið eru talin hafa áhuga á hans þjónustu.
Að sögn Kahn munu leikmennirnir líklega framlengja og vinna þá með nýjum stjóra liðsins, Julian Nagelsmann.
„Viðræðurnar ganga mjög vel og er er virkilega bjartsýnn," sagði Kahn á blaðamannafundi.
„Við getum boðið virkilega aðlaðandi pakka; þú átt alltaf möguleika á að vinna stærstu titlana með okkur og að stimpla þig inn í sögubækurnar."
„Þetta eru báðir mjög mikilvægir leikmenn sem eru á toppnum."
Athugasemdir