Arsenal endurnýjar áhuga á Luiz - Man Utd reynir við Todibo - Tottenham vill Sudakov
   fim 07. júlí 2022 15:39
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Crewe
„Ógeðslega mikilvægt að fá að knúsa börnin okkar"
Icelandair
Talandi um knús.
Talandi um knús.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Íslenska kvennalandsliðsins tekur næstu vikurnar þátt í Evrópumótinu. Liðið dvelur á Crewe Hall Hotel og æfir á æfingasvæði Crewe Alexandra.

Fréttamaður var forvitinn hvernig reglurnar væru með aðgengi fjölskyldu að leikmönnum, og öfugt, á meðan mótinu stendur.

Sif Atladóttir, tveggja barna móðir, svaraði spurningunni í viðtali í dag.

Verða einhverjir úr þinni fjölskyldu í stúkunni á sunnudaginn? „Já, maðurinn minn og börnin, tengdafjölskylda og mamma og maðurinn hennar."

„Steini er búinn að vera mjög opinn með það að ef fjölskyldan gefur okkur orku þá eru þau velkomin að koma hitta okkur. Fyrir okkur mömmurnar er það ógeðslega mikilvægt að fá að knúsa börnin okkar. Ég er alveg mjög spennt að geta fengið að knúsa börnin mín og manninn þegar þau koma."

„Við stjórnum okkar tíma vel. Svo lengi sem að þetta dregur ekki neina orku frá okkur og er bara gefa okkur [orku] þá verður þetta bara gott,"
sagði Sif. Viðtalið við Sif má sjá í heild sinni hér að neðan.

Fyrsti leikur Íslands er gegn Belgíu á sunnudag.
Jákvætt að fá aukaár í undirbúning - „Stórkostleg breidd"
Athugasemdir
banner
banner
banner