Á fundi stjórnar KSÍ 3. september síðastliðinn var m.a. fjallað um undanúrslitaleiki í Mjólkurbikarkeppni KSÍ.
Mótanefnd KSÍ telur nauðsynlegt að leika undanúrslitin í ár á hlutlausum völlum þar sem eru flóðljós og hefur verið fundað með fulltrúum ÍTF um málilð. Að öðrum kosti getur þurft að leika um hádegisbil á virkum degi.
Mótanefndin lagði til að samþykkt yrði bráðabirgðaákvæði í reglugerð sem heimilar þessa breytingu. Tillagan var samþykkt og vísaði stjórn KSÍ henni til laga- og leikreglnanefnd til úrvinnslu.
Undanúrslit í Mjólkurbikar karla verða miðvikudaginn 4. nóvember og úrslitaleikurinn sunnudaginn 8. nóvember.
Undanúrslit í Mjólkurbikar kvenna verða sunnudaginn 1. nóvember og úrslitaleikurinn verður föstudaginn 6. nóvember.
Athugasemdir