Portúgal vann Azerbaijan í undankeppni HM í dag.
Leiknum lauk með 3-0 sigri Portúgal en Diogo Jota, Bernardo Silva og Andre Silva skoruðu mörkin.
Portúgal er á toppi A-riðils en Serbía getur komist uppfyrir þá með sigri á Írlandi í kvöld.
Bruno Fernandes lagði upp fyrsta mark leiksins fyrir Bernardo. Þegar skammt var eftir af leiknum ruddust nokkrir áhorfendur inná völlinn og hópuðust að Bruno til að taka mynd af sér með honum.
Myndband af þessu atviki má sjá hér að neðan.
Fans invaded the pitch to take a pic with Bruno Fernandes. Seems he's quite known in Azerbaijan😳😏 pic.twitter.com/GY0AtMaato
— Eric Njiru (@EricNjiiru) September 7, 2021
Athugasemdir