Barcelona vill Díaz frá Liverpool - Úlfarnir skoða markverði - City til í að hlusta á tilboð í Grealish
   þri 07. september 2021 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Ederson vill ekki vera sóknarmaður: Ég myndi spila fyrir De Bruyne
Mynd: Getty Images
Brasilíski markvörðurinn Ederson er þekktur fyrir að vera einn af þeim bestu í heimi þegar kemur að því að sparka í knöttinn.

Fyrir utan að vera einn af bestu markvörðum heims er Ederson gríðarlega flinkur í fótunum og hefur átt nokkrar stoðsendingar á ferlinum.

Hann var tekinn í létt viðtal og spurður hvaða stöðu hann myndi spila ef Pep Guardiola myndi leyfa honum að spila úti á velli.

„Ég myndi ekki biðja um að vera sóknarmaður, ég myndi frekar vilja vera á miðjunni. Ég myndi taka stöðu De Bruyne þar," sagði Ederson.

„Takið De Bruyne út og setji mig inn í staðinn! Það myndi ekki breyta neinu!"
Athugasemdir
banner
banner
banner