Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   þri 07. september 2021 21:49
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Pickford getur bætt 55 ára gamalt met
Mynd: EPA
England heimsækir Pólland í undankeppni HM á morgun.

Jordan Pickford markvörður Everton og enska landsliðsins hefur fengið mikla gagnrýni í gegnum tíðina en hann steig upp fyrir enska landsliðið á EM í sumar.

Pickford hefur haldið 11 sinnum hreinu fyrir landsliðið á árinu en það er jöfnun á 55 ára gömlu meti hjá enska landsliðinu.

Gordon Banks hefur haldið hreinu flesta leiki í röð en það voru sjö leikir í röð á því herrans ári 1966.
Athugasemdir
banner
banner
banner