Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 07. september 2021 15:40
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Reus ekki með til Íslands
Icelandair
Marco Reus.
Marco Reus.
Mynd: Getty Images
Marco Reus, leikmaður Borussia Dortmund, ferðaðist ekki með þýska landsliðinu til Íslands og verður ekki með liðinu í leiknum á Laugardalsvelli á morgun.

Reus átti stórleik gegn Armeníu í síðasta leik; hann skoraði og átti stoðsendingu að marki.

Hann er að glíma við hnémeiðsli og getur þess vegna ekki spilað á morgun.

Thomas Müller, leikmaður Bayern München, er einnig frá vegna meiðsla hjá Þýskalandi.

Hansi Flick, landsliðsþjálfari Þýskalands, ákvað þá að taka ekki Ridle Baku, varnarmann Wolfsburg, með sér til Íslands.

Sjá einnig:
Líklegt byrjunarlið Þýskalands gegn Íslandi
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner