Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
Ísak Óli: FH var langfyrsti kosturinn hjá mér
Bestur í Mjólkurbikarnum: Vakinn með símhringingu - „Á Jölla mikið að þakka"
Sigdís Eva: Vissum að við gætum þetta og sýndum það í leiknum
Pétur: Það var ekkert lið inni á vellinum
John Andrews: Vorum að spila gegn líklega besta liði landsins
Kallaði þetta gott eftir fimm hnéaðgerðir og fær góð ráð frá pabba sínum
Þurfti að róa Pablo eftir leik - „Leikmenn eiga ekki að skipta sér af áhorfendum“
„Ef þetta heldur svona áfram verða bara allir í banni eftir smá stund"
Hefði sætt sig við jafntefli - „Ég held að við höfum reynt 5 eða 6 plön í þessum leik“
Alex Freyr ósáttur: Þetta er bara sorglegt
Eysteinn á von á geggjuðum leik - „Jölli er alltaf Jölli í Portúgal"
Arnór Smára: Hafði persónulega mikla þýðingu fyrir mig
Draumadráttur Jökuls: Augnablik á stóran hluta af mínu hjarta og mun alltaf gera
Kjartan Henry: Hallgrímur sá ekki til sólar eftir það
Var vítaspyrnudómurinn í Árbæ rangur?
Lék sinn fyrsta leik í efstu deild og vildi víti - „Fann fyrir snertingu og lét mig detta"
Líður eins og Valsarar hafi tapað leiknum - „Hafði aldrei trú á því að hann væri að fara skora"
Arnar Grétars: Gerði mikið fyrir okkur að vera með frábæran markmann
Svekktur yfir því að vinna ekki Val - „Mjög dapurt víti, svo við tölum hreint út“
Jón Þór: Bíð jafn spenntur og þú
   þri 07. september 2021 22:10
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Sveinn fyrirliði KH: Fögnum með bikarnum á laugardaginn
Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson
KH tryggði sér sæti í þriðju deild á næstu leiktíð eftir 2-0 sigur á Vængjum Júpíters í kvöld.

Sveinn Þorkell Jónsson fyrirliði liðsins var að vonum léttur er Fótbolti.net spjallaði við hann eftir leikinn.

„Þetta er geggjað, það sem við erum búnir að vinna fyrir í allt sumar, þetta er léttir á sama tíma og þetta er æðislegt. Mér leið þægilega allan leikinn, fannst við vera með þetta og held að allir hafi gert það."

Hann var ánægður með að ná að setja tóninn með marki snemma leiks.

„Það hjálpaði að setja mark frekar snemma, setja tóninn aðeins fyrir þetta. Við hefðum geta sett fleiri mörk í fyrri hálfleik, dettum aðeins niður í seinni en svörum svo fyrir okkur."

Liðið mætir Kormáki/Hvöt í úrslitaleik á laugardaginn. Sveinn segir að liðið ætli að bíða með að fagna sætinu í 3. deild eftir að liðið vinnur bikarinn.

„Við fögnum vel inní klefa núna og svo verður eitthvað meira á laugardaginn með bikarnum," sagði Sveinn og hló.

Hann var spurður í lokin hvort KH væri með besta liðið í 4.deild.

„Eigum við ekki að segja það, við sýnum það á laugardaginn."

Viðtalið í heild má sjá í spilaranum að ofan
Athugasemdir
banner
banner
banner