Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   þri 07. september 2021 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Vilhjálmur Alvar dæmir í undankeppni U21 landsliða fyrir EM
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Vilhjálmur Alvar Þórarinsson hefur verið valinn til að dæma leik Norður-Írlands og Slóvakíu í undankeppni EM 2023 hjá U21 landsliðum karla.

Vilhjálmi til aðstoðar verða þeir Gylfi Már Sigurðsson og Þórður Arnar Árnason. Fjórði dómari er Helgi Mikael Jónasson.

Liðin mætast í Lurgan á Norður-Írlandi í kvöld klukkan 18:30 á íslenskum tíma.

Slóvakía er með þrjú stig eftir eina umferð á meðan Norður-Írland er án stiga. Slóvakía lagði Litháen að velli á meðan Norður-Írar steinlágu gegn Möltu.
Athugasemdir
banner
banner