Kovac orðaður við stjórastól Liverpool - Newcastle vill Gibbs-White - Dewsbury-Hall orðaður við Tottenham
   fim 07. október 2021 16:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Arnar vildi ekki að veita fréttamanni upplýsingar um byrjunarliðið
Icelandair
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Á morgun mætir karlalandsliðið Armeníu í undankeppni HM. Af því tilefni sat landsliðsþjálfarinn Arnar Þór Viðarsson fyrir svörum á fréttamannafundi.

Fréttaritari sóttist eftir uppýsingum um hver myndi verja mark íslenska liðsins á morgun.

Ertu búinn að ákveða hver verður í markinu á morgun og geturu sagt okkur frá því hver það verður?

„Ég er búinn að ákveða það en ég er ekki búinn að tilkynna liðið. Ég get ekki gefið það upp, þá væri ég að tilkynna liðið fyrst til þín.“

Það væri samt alveg skemmtilegt að gera það þannig? „Já, væri geggjað,“ sagði Arnar léttur.

Elías Rafn Ólafsson verður í markinu ef horft er í líklegt byrjunarlið Íslands fyrir leikinn á morgun.

Athugasemdir
banner
banner