Bayern Munchen hefur ákveðið að hætta við að ferðast til Katar í vetrarfríinu eins og félagið hefur gert undanfarin ár.
Þetta hefur Julian Nagelsmann, stjóri Bayern, staðfest en Bayern hefur lengi vel ferðast til Doha í janúar er vetrarfríið í Þýskalandi fer í gang.
Þess í stað þá verður hópur Bayern áfram í heimalandinu en ástæðan er á meðal annars að vetrarfríið verður í styttri kantinum þetta árið.
Ákvörðunin fór þó ekki vel í alla í Katar en þar eru menn vanir því að fá nokkrar af stærstu stjörnum knattspyrnunnar í heimsókn. HM fer einmitt fram í Katar á næsta ári.
Einhverjir hafa lýst yfir óánægju opinberlega með þessa ákvörðun Bayern en vonin var að nota komu leikmanna til að auglýsa mótið á næsta ári.
Vetrarfríið hjá Bayern hefst þann 18. desember næstkomandi og lýkur þann 8. Janúar.
Athugasemdir