Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fim 07. október 2021 13:27
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Birkir: Held það sé enginn líkur Mario Balotelli
Icelandair
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Birkir Bjarnason, fyrirliði Íslands í komandi landsleikjum, sat fyrir svörum á fréttamannafundi í dag.

Birkir er leikmaður Adana Demirspor í Tyrklandi. Þar er hann liðsfélagi hins litríka Mario Balotelli.

Fréttaritari sló á létta strengi undir lok fundar og spurði Birki hvernig væri að spila með Balotelli. Birkir var einnig spurður hver í íslenska liðinu líkastur Balotelli.

„Ég held það sé enginn líkur Mario Balotelli," sagði Birkir léttur.

„Það er ótrúlega gaman að spila með honum og skemmtileg týpa. Þetta er skemmtileg spurning. Hann er frábær týpa og frábær persónuleiki og mjög gaman að vera í liði með honum," sagði Birkir.

Birkir var í kjölfarið spurður út tyrkneskt brúðkaup sem hann var í á dögunum, hægt var að sjá myndir úr því á Instagram fyrir ekki svo löngu síðan.

„Það var skemmtilegt að upplifa það, það er fjör." Arnar landsliðsþjálfari spurði Birki hvort hann hefði farið á dansgólfið. „Já, smá. Maður var dreginn á gólfið."
Athugasemdir
banner
banner