Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 07. október 2021 23:22
Victor Pálsson
Christensen gefur í skyn að hann muni framlengja
Mynd: Getty Images
Andreas Christensen, leikmaður Chelsea, hefur gefið í skyn að hann ætli að skrifa undir nýjan samning við enska félagið.

Samningur Christensen rennur út eftir minna en 12 mánuði en hann hefur enn ekki náð samkomulagi um framlengingu.

Christensen er mikilvægur hlekkur í liði Thomas Tuchel hjá Chelsea og fær reglulega að spila á Stamford Bridge.

„Það er erfitt að segja hvernig hlutirnir enda, það er mikið talað. Ég ætla ekki að segja of mikið en staðan lítur vel út. Ég er ánægður hjá Chelsea,“ sagði Christensen um framtíðina.

Þessi 25 ára gamli leikmaður hefur verið hjá Chelsea frá árinu 2013 en var lengi að brjóta sér leið inn í aðalliðið.

Einhver lið hafa sýnt leikmanninum áhuga og má nefna AC Milan á Ítalíu.
Athugasemdir
banner
banner