Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 07. október 2021 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Luis Enrique: Eins og hann væri að spila í garðinum eða á skólalóðinni
Marco Verratti og Gavi í baráttunni
Marco Verratti og Gavi í baráttunni
Mynd: EPA
Luis Enrique, þjálfari spænska landsliðsins, var heillaður af frammistöðu hins 17 ára gamla Gavi í 2-1 sigri liðsins á Evrópumeistaraliði Ítalíu í gær.

Gavi, sem er á mála hjá Barcelona, er yngsti leikmaðurinn til að byrja leik fyrir spænska liðið.

Hann var gríðarlega öflugur á miðjunni og ekki að sjá að 17 ára drengur væri að spila.

Enrique hrósaði honum í hástert eftir leikinn.

„Hann var að spila eins og hann væri í bakgarðinum heima hjá sér eða á skólalóðinni. Hann er nútíð og framtíð landsliðsins."

„Marco Verratti er uppáhaldsleikmaðurinn hans þannig ég sagði honum að pressa á hann frá fyrstu og fram að síðustu mínútu,"
sagði hann í lokin.
Athugasemdir
banner
banner