Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
   fim 07. október 2021 08:30
Brynjar Ingi Erluson
Segir að koma Ronaldo hafi breytt hugarfari leikmanna
Cristiano Ronaldo og Luke Shaw
Cristiano Ronaldo og Luke Shaw
Mynd: EPA
Enski landsliðsmaðurinn Luke Shaw segir að endurkoma Cristiano Ronaldo til Manchester United hafi breytt hugarfari leikmanna.

United gekk frá kaupum á Ronaldo frá Juventus á lokadegi gluggans í einhverjum stærsta félagaskiptagluggi allra tíma.

Ronaldo hefur persónulega byrjað vel með liðinu. Skorað fimm mörk í fimm leikjum, þar af þrjú í deild og tvö í Meistaradeild.

Shaw segir að hugarfar portúgalska leikmannsins hafi smitast inn í hópinn.

„Það er náttúrlega vitað að hann er stjarna og allt sem hann hefur gert í öll þessi ár. Það er eiginlega ótrúlegt að deila klefa með honum," sagði Shaw við BBC.

„Þú sérð hvernig hann ber sig og hvað hann gerir allt af mikilli fagmennsku. Það er frekar augljóst af hverju hann hefur verið á toppnum í öll þessi ár."

„Það er enginn með betra hugarfar en hann. Hann hefur klárlega bætt hugarfarið í klefanum,"
sagði Shaw.
Athugasemdir
banner
banner
banner