Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fim 07. október 2021 21:41
Victor Pálsson
Símtal frá Mourinho breytti miklu - Grínaðist með rigninguna
Mynd: Getty Images
Tammy Abraham, leikmaður Roma, hefur opnað sig um samræður hans og Jose Mourinho í sumar áður en hann ákvað að yfirgefa Chelsea á Englandi.

Mourinho tókst að sannfæra Abraham um að færa sig til Ítalíu en leikmaðurinn var ekki inni í myndinni hjá Thomas Tuchel, stjóra Chelsea.

Mourinho er að sjálfsögðu fyrrum stjóri Chelsea en hann tók við Roma fyrir tímabilið og hefur byrjað nokkuð vel á leiktíðinni.

Portúgalinn spilaði stórt hlutverk í ákvörðun Abraham sem var með þónokkra valmöguleika í sumargluggan um.

„Ég var með nokkra möguleika, Það voru svo mörg félög sem ég var að ræða við. Ítalía kom svo inn i myndinna og ég ræddi við Jose. Hann var með markmið,“ sagði Abraham.

„Ég gat séð hvar hann vildi fara með Roma og ég vildi vera hluti af því ferli. Hann sýndi mér mikið traust og hann var stór ástæða fyrir því að ég valdi Roma.“

„Það fyrsta sem hann spurði mig að var hvort ég vildi njóta sólarinnar eða halda áfram í rigningunni. Ég hló að því.“
Athugasemdir
banner
banner