Hollendingar sjá um VAR
Svartfellingurinn Nikola Dabanovic dæmir leik Íslands og Armeníu í undankeppni HM annað kvöld. Leikurinn hefst 18:45 á Laugardalsvelli.
Dabanovic er 39 ára gamall og dæmir reglulega í Evrópudeildinni auk þess að dæma landsleiki.
Landar hans Milovan Djukic og Vladan Todorovic verða aðstoðardómarar.
Dabanovic er 39 ára gamall og dæmir reglulega í Evrópudeildinni auk þess að dæma landsleiki.
Landar hans Milovan Djukic og Vladan Todorovic verða aðstoðardómarar.
Hollendingar sjá um VAR dómgæsluna. Kevin Blom er VAR-dómari á leiknum og VAR-aðstoðardómari er Clay Ruperti.
Athugasemdir