Arturo Vidal og Alexis Sanchez eru launahæstu leikmenn Inter en eiga ekki fast sæti í liðinu og samkvæmt La Gazzetta dello Sport gætu þeir báðir verið á útleið.
Sanchez er með 7 milljónir evra á ári og Vidal 6,5 milljónir.
Sanchez kvartaði yfir litlum spiltíma eftir 2-1 sigur Inter gegn Sassuolo um síðustu helgi og líkti sjálfum sér við ónotaðan Ferrari.
Talið er að Sílemaðurinn gæti farið í janúarglugganum, mögulegt er að samkomulag verði gert um riftun á samningi.
Samningur Vidal við Inter rennur út eftir tímabilið og Ítalíumeistararnir hyggjast ekki framlengja.
Arturo Vidal
Athugasemdir