Belgía og Frakkland eigast við í seinni undanúrslitaleik A-deildar Þjóðadeildarinnar klukkan 18:45 í kvöld en leikurinn fer fram á Allianz-leikvanginum í Tórínó.
Tvær sterkustu þjóðir heims etja kappi á Ítalíu en sigurvegarinn mætir Spánverjum í úrslitaleik.
Úrslitaleikurinn fer fram á sunnudaginn á San Síró-leikvanginum í Mílanó.
Leikur dagsins:
18:45 Belgía - Frakkland
Athugasemdir