Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
Jökull: Þeir voru frábærir - Við áttum kannski ekkert skilið úr þessum leik
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
Nýir tímar í Laugardalnum - „Finnst bara tilvalið að með því fylgi nýtt merki“
Haukur Páll: Ekki spurning um að koma mönnum fyrir
Heimir Guðjóns: Hefði verið gult spjald í fyrra
Gylfi Þór: Skrítið að spila gegn liði sem ég var hjá í 10 ár
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
Bjarni Jó: Nýttum færin okkar illa
Gunnar Magnús: Alsæll þrátt fyrir að það hafi endað í jafntefli
Ólafur Kristjáns: Ekki hægt að gera neitt við því núna
Kristján Guðmunds: Munum rífa okkur í gang eftir þetta
John Andrews: Gæti ekki verið stoltari
Nik: Vigdís hefur staðið sig vel sem framherji
Glenn: Komum hingað með því hugarfari að vinna leikinn
Vigdís Lilja: Ætla að spila frammi í sumar og skora eins mikið og ég get
Sáttur Arnar Gunnlaugs: Erum að senda ágæt skilaboð til liðanna í deildinni
Höskuldur brattur eftir leik: Maður verður að jafna sig hratt á þessu
Elskar stóru leikina - „Vona að fólk viti að þeir kitla mig.“
   þri 07. nóvember 2017 11:30
Elvar Geir Magnússon
Gylfi um stjóraskipti: Þetta venst
Icelandair
Heimir Hallgrímsson landsliðsþjálfari og Gylfi á æfingunni í dag.
Heimir Hallgrímsson landsliðsþjálfari og Gylfi á æfingunni í dag.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Það er mjög þægilegt að vera upp í sófa að horfa á umspilsleikina núna. Það er gaman að vera í Katar í afslappaðra umhverfi," sagði Gylfi Þór Sigurðsson við Fótbolta.net í Katar í dag.

Íslenska landsliðið á framundan vináttuleiki gegn Tékklandi og Katar þar sem sætið á HM er í höfn. Króatía og fleiri þjóðir eru hins vegar á leið í umspil á sama tíma.

Gylfi og félagar í Everton unnu langþráðan sigur á sunnudag en liðið lagði þá Watford 3-2.

„Það var frábært. Það var kominn tími á að vinna leik og þetta var mikill léttir. Þetta var gríðarlega mikilvægt fyrir okkur upp á sjálfstraustið og framhaldið. Við eigum Crystal Palace næst og vonandi fer þetta að snúast við hjá okkur," sagði Gylfi en Everton kom til baka eftir að hafa verið 2-0 undir í síðari hálfleik.

„Það er góður mórall í hópnum þó að það hafi gengið illa. Þó að staðan hafi verið 2-0 þá gáfumst við ekki upp. Við ætluðum að koma okkur aftur inn í leikinn. Þetta hefur ekki verið nógu gott allt tímabilið en vonandi fer það að breytast."

Ronald Koeman var rekinn frá Everton á dögunum en Gylfi er vanur tíðum stjóraskiptum hjá sínum félögum undanfarin ár.

„Þetta venst svolítið en óvissan og breytingarnar er það versta við þetta. Liðið er alltaf með þjálfara, hvort sem það er tímabundinn þjálfari eða þjálfari sem er ráðinn til margra ára. Þegar kemur að leik eru menn ekki að hugsa út í þetta. Það sem skiptir máli er að liðið fari að spila vel og ná í úrslit," sagði Gylfi að lokum.

Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
Athugasemdir
banner