Jóhann Berg Guðmundsson kemur fullur sjálfstrausts inn í komandi vináttuleiki íslenska landsliðsins gegn Tékklandi og Katar. Jóhann hefur lagt upp sigurmark Burnley í síðustu tveimur leikjum í ensku úrvalsdeildinni en Burnley er í 7. sæti í ensku úrvalsdeildinni.
„Þetta er mjög svpað og hjá íslenska landsliðinu," sagði Jóhann við Fótbolta.net fyrir æfingu í Katar í dag.
„Við erum ekki mikið með boltann í leikjum. Þetta eru það góð lið að það er oft erfitt að halda boltanum gegn þeim. Það er erfitt að skora hjá okkur, höldum hreinu og erum ógnandi fram á við. Þetta er mjög líkt íslenska landsliðinu."
Jóhann er einn af þeim sem gefa út fótboltaspilið Beint í mark en leikmenn landsliðsins ætla að spila það í ferðinni í Katar.
„Það er meðferðis. Við þurfum að sjá hver er bestur í þessu og hver er lélegastur. Við grípum í spilið," sagði Jóhann. „Ætli Alfreð sé ekki líklegastur en við þurfum að sjá hver er sá lélegasti."
Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
Athugasemdir