Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 07. nóvember 2017 09:30
Magnús Már Einarsson
PSG ræðir við Mourinho - Navas til Arsenal eða Liverpool?
Powerade
Mourinho er orðaður við PSG.
Mourinho er orðaður við PSG.
Mynd: Getty Images
Keylor Navas er orðaður við Liverpool og Arsenal.
Keylor Navas er orðaður við Liverpool og Arsenal.
Mynd: Getty Images
Ensku blöðin nota landsleikjahléið til að koma með alls konar slúður úr enska boltanum.



Everton vill fá Sam Allardyce (63) sem stjóra út tímabilið. Allardyce fær 100 þúsund pund í vikulaun en Craig Shakespeare, fyrrum stjóri Leicester, verður honum mögulega aðstoðar. (Sun)

Carlo Ancelotti, Roberto Mancini og Rafael Benitez neituðu allir West Ham áður en David Moyes var ráðinn nýr stjóri þar á bæ. (Sun)

West Ham er í viðræðum um að fá Stuart Pearce sem aðstoðarmann Moyes. (Telegraph)

PSG hefur rætt við umboðsmann Jose Mourinho stjóra Manchester United. Mourinho er ósáttur við að fá ekki meiri pening í leikmannakaup hjá United. (Manchester Evening News)

Manchester United er til í að selja David De Gea (26) til Real Madrid ef að Raphael Varane (24) kemur í hina áttina. (Don Balon)

Framtíð David Luiz hjá Chelsea er í óvissu en hann var ekki í hóp gegn Manchester United um helgina. Luiz óttast að Antonio Conte sé að refsa honum fyrir vinskap sinn við Diego Costa. (Times)

Marouane Fellani (29) miðjumaður Manchester United er á óskalista Besiktas í Tyrklandi. Fellaini verður samningslaus næsta sumar en hann getur byrjað að ræða við önnur félög í janúar. (Turkish Football)

Arsenal vill fá Keylor Navas (30) markvörð Real Madrid. Navas hefur líka verið orðaður við Liverpool. (Teamtalk)

Arsenal er að undirbúa tíu milljóna punda tilboð í Oguzhan Ozyakup (25) miðjumann Besiktas. Arsenal seldi Ozyakup á 400 þúsund pund árið 2012. (Talksport)

Everton er á eftir James Maddison (20) miðjumanni Norwich (ESPN)

Newcastle gæti reynt að fá Lewis Holtby (27) miðjumann Hamburg. Holtby verður samningslaus næsta sumar en hann lék áður með Tottenham. (HITC)

Arsenal hefur endurvakið áhuga sinn á Rafinha (24) miðjumanni Barcelona en hann er spenntur fyrir því að spila í ensku úrvalsdeildinni. (Mundo Deportivo)

Virgil Van Dijk (26) varnarmaður Southampton segist ætla að gefa 100% til félagsins þrátt fyrir að hafa óskað eftir sölu til Liverpool í sumar. (Southern Daily Echo)

Chelsea er að íhuga tilboð í Mouctar Diakhaby (20) leikmann Lyon en Manchester City hefur einnig áhuga. (Daily Mail)
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner