Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   lau 07. nóvember 2020 17:49
Ívan Guðjón Baldursson
Bamford: Þetta er að eyðileggja fótboltann
Mynd: Getty Images
Patrick Bamford skoraði eina mark Leeds United í 4-1 tapi gegn Crystal Palace í dag.

Bamford kom knettinum þó tvisvar sinnum í netið en fyrra mark hans var dæmt af vegna afar umdeildrar rangstöðu þar sem handleggur hans var millimetrum fyrir innan aftasta varnarmann.

Bamford trúir ekki að það hafi verið dæmd rangstaða og er ekki sá eini sem skilur ekkert í þessari dómaraákvörðun.

„Ég skil ekki regluna, hvernig getur handleggurinn verið rangstæður ef ég má ekki nota hann til að skora? Þetta gerðist fyrir mig í dag en ég hef séð þetta áður, þetta er að eyðileggja fótboltann. Þú vilt sjá mörk í fótbolta og að dæma mark af fyrir eitthvað svona er bara heimskulegt," sagði Bamford.

„Dómarinn sjálfur var meira að segja ósammála ákvörðuninni. Það verður að laga þessar reglur."

Leeds átti þokkalegan leik en heimamenn nýttu færin sín betur og voru 3-1 yfir í hálfleik eftir að hafa fengið sinn skerf af heppni.

„Við stóðum okkur betur í dag heldur en gegn Leicester. Við vorum ekki nógu snöggir að hreyfa boltann og erum ánægðir að fara inn í landsleikjahlé. Við erum sáttir með gengi okkar í fyrstu 8 leikjum tímabilsins."

Sjá einnig:
Rangstaða á Bamford því hann benti - „Orðið algert grín"
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 34 24 5 5 82 26 +56 77
2 Liverpool 33 22 8 3 75 32 +43 74
3 Man City 32 22 7 3 76 32 +44 73
4 Aston Villa 34 20 6 8 71 50 +21 66
5 Tottenham 32 18 6 8 65 49 +16 60
6 Newcastle 32 15 5 12 69 52 +17 50
7 Man Utd 32 15 5 12 47 48 -1 50
8 West Ham 34 13 9 12 54 63 -9 48
9 Chelsea 32 13 8 11 61 57 +4 47
10 Brighton 32 11 11 10 52 50 +2 44
11 Wolves 33 12 7 14 46 53 -7 43
12 Fulham 34 12 6 16 50 54 -4 42
13 Bournemouth 33 11 9 13 48 60 -12 42
14 Crystal Palace 33 9 9 15 42 56 -14 36
15 Brentford 34 9 8 17 52 59 -7 35
16 Everton 33 10 8 15 34 48 -14 30
17 Nott. Forest 34 7 9 18 42 60 -18 26
18 Luton 34 6 7 21 47 75 -28 25
19 Burnley 34 5 8 21 37 69 -32 23
20 Sheffield Utd 33 3 7 23 31 88 -57 16
Athugasemdir
banner
banner
banner