Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   lau 07. nóvember 2020 16:41
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Byrjunarlið Dortmund og Bayern: Stórslagur af bestu gerð
Haaland byrjar fremstur hjá Dortmund.
Haaland byrjar fremstur hjá Dortmund.
Mynd: Getty Images
Tvö stærstu félög Þýskalands eigast við í leik sem hefst klukkan 17:30; Borussia Dortmund og Bayern München eigast við á heimavelli fyrrnefnda liðsins.

Bæði lið eru með 15 stig sex leiki spilaða, einu stigi á eftir RB Leipzig sem komst á toppinn með 3-0 sigri á Freiburg fyrr í dag.

Bayern er án Niklas Sule og Alphonso Davies, en Dortmund er án Emre Can. Mats Hummels og Leon Goretzka eru klárir í slaginn í þennan leik.

Leikurinn verður sýndur í beinni á Viaplay. Hér að neðan má sjá byrjunarliðin.

Byrjunarlið Dortmund: Burki; Meunier, Akanji, Hummels, Guerreiro; Witsel, Delaney; Sancho, Reus, Reyna; Haaland.

Byrjunarlið Bayern: Neuer; Sarr, Boateng, Alaba, Lucas; Kimmich, Goretzka; Coman, Müller, Gnabry; Lewandowski.
Athugasemdir
banner
banner