Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   lau 07. nóvember 2020 16:54
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
England: Frábær sigur fyrir Palace gegn Leeds
Mynd: Getty Images
Crystal Palace 4 - 1 Leeds
1-0 Scott Dann ('12 )
2-0 Eberechi Eze ('22 )
2-1 Patrick Bamford ('27 )
3-1 Helder Costa ('42 , sjálfsmark)
4-1 Jordan Ayew ('70 )

Crystal Palace bar sigur úr býtum gegn Leeds United þegar liðin áttust við í ensku úrvalsdeildinni á Selhurst Park.

Scott Dann kom Palace yfir snemma leiks, en Leeds svaraði því fljótlega og jafnaði Patrick Bamford. Það mark fékk hins vegar ekki að standa til mikillar reiði stuðninsmanna Leeds - og það skiljanlega.

Stuttu eftir að markið var dæmt af Leeds, þá komst Palace í 2-0. Eberechi Eze skoraði markið, en Bamford skoraði á 27. mínútu og minnkaði muninn í 2-1. Það mark þótti löglegt.

Þessi leikur var mjög fjörugur, að minnsta kosti fyrri hálfleikurinn. Palace komst í 3-1 fyrir leikhlé er Helder Costa skoraði sjálfsmark.

Jordan Ayew rak síðasta naglann í kistu Leeds þegar 20 mínútur voru eftir af venjulegum leiktíma. Lokatölur 4-1 fyrir Palace sem er núna þremur stigum á undan Leeds í sjötta sæti deildarinnar. Frábær sigur fyrir Palace.
Athugasemdir
banner
banner