lau 07. nóvember 2020 10:43
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Hazard og Casemiro með kórónuveiruna
Hazard var nýkominn aftur inn á völlinn.
Hazard var nýkominn aftur inn á völlinn.
Mynd: Getty Images
Casemiro og Eden Hazard, leikmenn Real Madrid, hafa verið greindir með kórónuveiruna.

Leikmenn Real Madrid fóru í próf í gærmorgun og komu tvö jákvæð sýni til baka.

Hazard og Casemiro fara núna í einangrun í nokkra daga.

Hazard hefur ekki átt sjö dagana sæla hjá Real Madrid frá komu sinni til félagsins. Hazard var seldur frá Chelsea til Real Madrid á væna summu síðasta sumar.

Hazard hefur háð baráttu við bæði aukakíló og meiðsli, en hann skoraði sitt annað deildarmark fyrir félagið í leik á dögunum. Hann var þá að snúa aftur eftir meiðsli, en núna mun hann missa af fleiri leikjum.
Athugasemdir
banner