Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   lau 07. nóvember 2020 16:23
Elvar Geir Magnússon
Líkleg byrjunarlið Man City og Liverpool
Mynd: Guardian
Það er sannkallaður stórleikur í ensku úrvalsdeildinni klukkan 16:30 á morgun þegar Manchester City tekur á móti Englandsmeisturum Liverpool.

Hér má sjá líkleg byrjunarlið að mati Guardian.

Gabriel Jesus gæti byrjað sinn annan leik í ensku úrvalsdeildinni á þessu tímabili eftir að hafa snúið til baka úr meiðslum í sigrinum gegn Olympiakos í Meistaradeildinni í miðri viku.

Guardian reiknar þó með því að Jesus byrji á bekknum.

Sergio Aguero, Benjamin Mendy og Fernandinho eru enn fjarri góðu gamni.

Liverpool endurheimtir væntanlega varnarmanninn Joel Matip sem hefur misst af síðustu tveimur leikjum vegna meiðsla,

Naby Keita er leikfær en Thiago Alcantara ekki.
Athugasemdir
banner
banner