James Maddison, leikmaður Leicester City, viðurkennir að hann sé sár með að vera ekki hluti af enska landsliðshópnum undir Garteth Southgate.
Maddison er 23 ára gamall sóknarmiðjumaður og er einn allra mikilvægasti leikmaður Leicester sem er að berjast á toppnum í úrvalsdeildinni.
Maddison var ekki valinn í nýjasta hóp enska landsliðsins en hann fékk frumraun sína með hópnum í fyrra.
Vonandi fyrir leikmanninn þá verða tækifærin fleiri í framtíðinni en hann er sjálfur sár með ákvörðun Southgate.
„Ef ég á að vera hreinskilinn þá já, ég er vonsvikinn. Ég vil vera hluti af enska landsliðshópnum," sagði Maddison.
„Það hefur verið draumur síðan ég var krakki. Ég get ekki stjórnað þessu og einbeiti mér bara að Leicester."
Athugasemdir