John Rooney, yngri bróðir Wayne Rooney, var að skora sitt sjötta mark í sex leikjum með Stockport County sem leikur í utandeildinni á Englandi.
Rooney gerði fyrsta mark leiksins í fræknum 1-2 sigri á útivelli gegn C-deildarliði Rochdale í FA bikarnum í dag.
Rooney var þá með boltann á eigin vallarhelmingi og tók eftir að markvörður Rochdale var kominn af marklínunni.
Hann var snöggur að hugsa og hikaði ekki við að láta vaða. Boltinn flaug yfir markvörð Rochdale og er hægt að sjá þetta glæsilega mark hér fyrir neðan.
Það er ljóst að John hefur fengið eitthvað brot af þeim hæfileikum sem Wayne stóri bróðir hans fæddist með. John Rooney verður þrítugur í desember.
Rooney , Rooney !! #stockportcounty pic.twitter.com/jPTPYapij2
— Steve (@Steve_Motty) November 7, 2020
Athugasemdir