Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 07. nóvember 2020 14:17
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Myndband: Maguire fór niður í teignum eftir spark frá Pickford
Pickford og Maguire.
Pickford og Maguire.
Mynd: Getty Images
Jordan Pickford var aftur í sviðsljósinu fyrir að sparka í mótherja innan teigs í leik sem núna stendur yfir gegn Manchester United.

Enski landsliðsmarkvörðurinn fékk mikla gagnrýni fyrir að sparka í Virgil van Dijk innan teigs í leik gegn Liverpool á dögunum. Van Dijk meiddist alvarlega.

Van Dijk fékk ekki vítaspyrnu þar sem hann var rangstæður en núna í leiknum gegn United sparkaði hann í Maguire, ásamt Michael Keane, sem var réttstæður. Maguire fór niður í teignum.

Margir stuðningsmenn Man Utd furðuðu sig á því hvernig vítaspyrna var ekki dæmd. VAR skoðaði atvikið og ekkert var dæmt, en dómari leiksins ákvað að skoða það ekki í VAR-skjánum.

Með því að smella hérna má sjá atvikið.





Athugasemdir
banner
banner
banner