Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   lau 07. nóvember 2020 21:30
Ívan Guðjón Baldursson
Noregur: Jón Guðni og Valdimar Þór töpuðu
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Valdimar Þór Ingimundarson lék allan leikinn er Strömsgodset tapaði 3-0 fyrir Mjondalen í norska boltanum í dag.

Ari Leifsson var ónotaður varamaður hjá Strömsgodset, sem er aðeins fjórum stigum fyrir ofan fallsvæðið eftir tapið.

Jón Guðni Fjóluson lék þá allan leikinn er Brann tapaði fyrir Haugesund.

Heimamenn í Brann stjórnuðu leiknum allan tímann og voru óheppnir að tapa. Þeir eru fimm stigum fyrir ofan fallsvæðið þegar sex umferðir eru eftir.

Mjondalen 3 - 0 Strömsgodset
1-0 O. Sveen ('4)
2-0 F. Brustad ('58)
3-0 S. Aasmundsen ('84)

Brann 1 - 2 Haugesund
0-1 A. Ahamada ('56, sjálfsmark)
1-1 P. Strand ('61)
1-2 N. Sandberg ('66, víti)
Athugasemdir
banner
banner