Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   lau 07. nóvember 2020 19:50
Ívan Guðjón Baldursson
Sandra framlengir við Val
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Sandra Sigurðardóttir er búin að framlengja samning sinn við Val sem endaði í öðru sæti Íslandsmótsins í ár.

Sandra er 34 ára og hefur verið hjá Val í fimm ár. Hún er leikjahæsti leikmaður í sögu efstu deildar kvenna með 296 leiki að baki.

Sandra hefur bæði orðið Íslands- og bikarmeistari en hún hefur aðeins spilað fyrir eitt erlent lið, þegar hún fór til Jitex í Svíþjóð 2011.

Sandra, sem lék áður fyrir Stjörnuna í efstu deild, er aðalmarkvörður íslenska landsliðsins og á 32 leiki að baki.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner