banner
   lau 07. nóvember 2020 13:50
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Willian: Við getum unnið deildina
Willian.
Willian.
Mynd: Getty Images
Brasilíumaðurinn Willian hefur trú á því að Arsenal geti barist um það að vinna ensku úrvalsdeildina.

Willian yfirgaf Chelsea síðasta sumar en hann fór ekki langt og samdi við Arsenal.

Það eru 16 ár síðan Arsenal vann ensku úrvalsdeildina síðast en Willian er bjartsýnn fyrir framhaldinu.

„Arsenal er með frábæran þjálfara og hefur frábæran möguleika á að vinna titla," sagði Willian í samtali við Daily Mail. „Við getum unnið deildina, kannski ekki í ár en þá á næsta ári."

Arsenal vann 1-0 sigur gegn Manchester United um síðustu helgi og er liðið með 12 stig eftir sjö leiki í níunda sæti. Arsenal á leik gegn Aston Villa á morgun.
Athugasemdir
banner
banner
banner