mán 07. nóvember 2022 06:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Ancelotti segist ekki þurfa að styrkja hópinn frekar
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Real Madrid mun ekki styrkja hópinn sinn í janúar glugganum en þetta staðfestir Carlo Ancelotti stjóri liðsins.


Real mætir Rayo Vallecano í spænsku deildinni í kvöld og með sigri endurheimtir liðið toppsætið í deildinni af Barcelona.

Real vann F riðilinn í Meistaradeildinni svo Ancelotti telur sig ekki þurfa að styrkja hópinn á þessari leiktíð. Karim Benzema er orðinn 34 ára en Ancelotti hefur mikla trú á því að Rodrygo muni leysa hann af hólmi þegar að því kemur.

„Rodrygo er mjög spennandi og á framtíðina fyrir sér í 'níunni'. Ég sé hann sem fremsti maður eða fyrir aftan fremsta manninn í framtíðinni," sagði Ancelotti.


Athugasemdir
banner
banner
banner