mán 07. nóvember 2022 19:15
Ívan Guðjón Baldursson
Arsenal mætir Milan og Lyon í Dúbaí
Mynd: Getty Images

David Ornstein hjá The Athletic segir að leikmenn Arsenal sem fara ekki á HM muni fá um tíu daga frí. 


Að fríi loknu halda leikmennirnir í æfingaferð til Dúbaí 4. desember þar sem liðið mun spila æfingaleiki við Lyon 8. desember og AC Milan 13. desember.

Liverpool mun einnig fara til Dúbaí og spila á æfingamótinu en ekki er búist við að liðið mæti Arsenal þar.

Arsenal mun að lokum spila heimaleik 17. desember en það á eftir að finna andstæðing. Félagið er í viðræðum við mögulega andstæðinga úr spænsku deildinni.

Martin Ödegaard, fyrirliði Arsenal, fer til að mynda ekki til Katar eftir að Norðmönnum mistókst að tryggja sér sæti á HM.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner