Gabriel Magalhaes var hetja Arsenal þegar liðið sigraði grannaslaginn á Stamford Bridge gegn Chelsea í gær.
Hann skaut föstum skotum á fyrrum liðsfélaga sinn, Aubameyang, eftir leikinn á Twitter.
Aubameyang gekk til liðs við Chelsea frá Barcelona í sumar en hann yfirgaf Arsenal í fyrra og fór til Spánar.
Hann tók þátt í kynningarmyndbandi fyrir BT Sport fyrir grannaslaginn um helgina.
„Arsenal, þetta er ekkert persónulegt, ég er kominn aftur, ég er blár, ég er tilbúinn," sagði Aubameyang í myndbandinu.
Eftir leikinn fór Gabriel á Twitter og skrifaði: „Ekkert persónulegt. London er rauð."
NOTHING PERSONAL .. LONDON IS RED ❤️
— Gabriel Magalhaes (@biel_m04) November 6, 2022
Athugasemdir