Pablo Marí leikmaður Monza varð fyrir stunguárás á dögunum í matvöruverslun á Ítalíu þar sem nokkrir særðust og einn lést.
Marí var fluttur á sjúkrahús og fór í aðgerð en hann var útskrifaður á sunnudaginn fyrir viku síðan.
Svo í gær var hann mættur á völlinn til að horfa á sína menn í Monza gegn Verona í ítölsku Serie A. Monza vann leikinn með tveimur mörkum gegn engu.
Hann hitti liðsfélaga sína út á velli fyrir leik og heilsaði einnig upp á stuðningsmenn liðsins.
Marí er á láni frá Arsenal.
❤️ @PabloMV5 ❤️@ACMonza #MonzaVerona pic.twitter.com/iYr8hCbSyL
— Lega Serie A (@SerieA_EN) November 6, 2022
Athugasemdir