Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 07. nóvember 2022 08:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
„Salah einn besti framherji sem við höfum nokkurn tímann séð"
Mynd: Getty Images
Mohamed Salah framherji Liverpool var gagnrýndur í upphafi tímabilsins en hann var ekki að skora eins mikið og hann hafði gert síðustu ár.

Hann hefur nú skorað fimm mörk í síðustu fjórum leikjum en hann skoraði bæði mörkin í 2-1 sigri Liverpool gegn Tottenham í gær. 

„Þrátt fyrir að Salah hafi byrjað hægt þá var hann skapa flest færi í Evrópuboltanum en hann var ekki að nýta það, það er eðlilegt að menn gangi í gegnum svona tímabil. Þegar fólk lítur til baka eftir 4-6 ár minnist það eins besta framherja sem við höfum nokkurn tímann séð, tölurnar verða alveg klikkaðar," sagði Jurgen Klopp eftir leikinn gegn Tottenham.

Salah hefur spilað 20 leiki í öllum keppnum á þessu tímabili, skorað 14 mörk og lagt upp fimm.


Athugasemdir
banner