banner
   mán 07. nóvember 2022 09:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Ten Hag ánægður með Ronaldo: Mikilvægur hluti af hópnum
Mynd: EPA

Margir ráku upp stór augu þegar byrjunarlið Manchester United gegn Aston Villa var tilkynnt í gær. Cristiano Ronaldo hefur verið að valda usla að undanförnu en hann var fyrirliði liðsins í gær.


Erik ten Hag setti Ronaldo í kælingu þegar hann yfirgaf Old Trafford í leik gegn Tottenham um daginn og hann var ekki í hóp í næsta leik gegn Chelsea.

„Það hefur ekkert breyst, þegar þú ert fyrirliði og leiðtogi verður þú að sýna fordæmi, ég ætlast til þess af honum. Hann er mikilvægur hluti af hópnum, við erum ánægð með hann," sagði Ten Hag fyrir leikinn í gær.

.Manchester United tapaði leiknum 3-1 og Ronaldo lék allan leikinn.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner