Búið er að ákveða að leikur Liverpool og Everton í enska bikarnum fari fram á föstudagskvöldi.
Liðin mætast á Anfield föstudagskvöldið 5. janúar klukkan 19:55.
Liðin mætast á Anfield föstudagskvöldið 5. janúar klukkan 19:55.
Þessi lið mætast í nágrannaslag í ensku úrvalsdeildinni á sunnudag klukkan 14:15.
Liðin eiga bæði fjölmarga leiki framundan í kringum jól og áramót í úrvalsdeildinni.
Á nýársdag mætir Liverpool liði Burnley á útivelli á meðan Everton fær Manchester United í heimsókn. Liðin fá síðan nokkra daga í hvíld áður en þau mætast í bikarnum.
Athugasemdir