Ungstirnið Eddie Nketiah, sem spilar sem sóknarmaður, hefur skrifað undir „langtímasamning" við Arsenal.
Hinn 18 ára gamli Nketiah lék sinn fyrsta leik fyrir aðallið Arsenal þegar hann kom stuttlega inn á sem varamaður gegn Bate Borisov í Evrópudeildinni í september.
Hann hefur síðan þá spilað þrjá leiki til viðbótar. Sá eftirminnilegasti var gegn Norwich í deildabikarnum en þá kom hann inn á sem varamaður og skoraði bæði mörk Arsenal í 2-1 sigri.

Eftir þann leik uppskar hann hrós frá Thierry Henry og þá var lýsingu hans á Wikipedia breytt.
Nú hefur Nketiah fengið nýjan samning eins og Matt Macey og Ben Sheaf, sem einnig hafa stigið sín fyrstu skref með aðalliði félagsins á þessari leiktíð.
Delighted to have signed a new long term deal with @Arsenal , looking forward to pushing on and continuing my development at this great club. Thanks to my family and friends for all the support, God is good!🙏🏾 pic.twitter.com/CnFrKaHynV
— Eddie Nketiah (@EddieNketiah9) December 6, 2017
Athugasemdir