Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 07. desember 2021 13:27
Elvar Geir Magnússon
Kovacic með Covid
Mateo Kovacic er með veiruna.
Mateo Kovacic er með veiruna.
Mynd: Getty Images
Thomas Tuchel, stjóri Chelsea, hefur staðfest að króatíski miðjumaðurinn Mateo Kovacic sé frá eftir að hafa greinst með Covid-19.

Kovacic var byrjaður að æfa að nýju eftir meiðsli en nú er ljóst að eitthvað lengra verður í endurkomu hans.

„Hann var á æfingu í gær með bros á vör en svo greindist með veiruna í dag svo hann er kominn í einangrun," segir Tuchel.

„Ég vissi að við gætum fengið fleiri tilfelli. Ég er óánægður með það, ekki bara sem stjóri heldur sem manneskja. En við þurfum að aðlagast og gæta að heilsu fólks."

Chelsea mætir Zenit frá Pétursborg á morgun í Meistaradeildinni. Chelsea er komið áfram en þarf að vinna Zenit til að tryggja sér efsta sætið í riðlinum.

Tuchel segir ljóst að leikmenn verði hvíldir í þessum lokaleik riðlakeppninnar enda mikilvæg leikjatörn framundan. N'Golo Kante er enn á meiðslalistanum.
Athugasemdir
banner
banner
banner